top of page

Kilchoman viskí

Kilchoman er eitt af Islay brugghúsunum og enn sem komið er það yngsta af þeim. Kilchoman var stofnað árið 2005 og er fjölskyldufyrirtæki. Kilchoman er eina Islay brugghúsið sem framleiðir hluta sinnar framleiðslu úr heimaræktuðu byggi. Það er hin árlega 100% Islay útgáfa sem aðdáendur bíða alltaf spenntir eftir. 

​

Kilchoman framleiðir sem stendur þrjár tegundir sem fáanlegar eru allt árið. Það eru Machir Bay, Sanaig og Batch Strength. Hægt er að fá Machir Bay og Sanaig hér á landi að staðaldri. Machir Bay er nú fáanlegt í fjölmörgum vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu og einnig  á Akureyri. Sanaig er  fáanlegt í Heiðrúnu. Báðar þessar tegundir er svo að sjalfsögðu hægt að fá i sérpöntun á vef Vínbúðarinnar, www.vinbudin.is  Þegar vörur eru keyptar í sérpöntun er hægt að velja um að fá þær sendar án aukakostnaðar í hvaða Vínbúð sem er.

Batch Strength er einnig eingöngu í boði hér á síðunni.

​

Allar aðrar vörur hér á síðunni má einnig kaupa beint í gegnum síðuna og við bjóðum upp á ókeypis heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu

​

Fyrir ítarlegri upplýsingar bendum við á frábæra heimasíðu Kilchoman

SanaigCS_26_BC_Low-600x624.png.webp

Annað hvert ár fáum við Machir Bay cask Strength og hitt árið Sanaig Cask Strength. Í ár er hitt árið.

Tappað í 57,5% styrkleika, beint úr sérrítunnunni. Sanaig á sterum. Þannig að lesið bara það sem stendur um Sanaig hér að neðan og margfaldið með allavega tveimur, jafnvel þremur. Eða það sem betra er - tryggið ykkur flösku og smakkið. 

​

Anthony segir:

“Cask strength whiskies have a magic about them. They have an

ability to surprise you, to deliver flavour in a way which is entirely

unexpected,” 

​

👃 Nose: Rich sherry infused smoke, sultanas, red berries, and orange zest.

​

👅 Palate: Dark chocolate and sticky raisins, with notes of BBQ smoke and sweetness.

​

🏁 Finish: Ashy smoke with waves of sweetness and rich spices.

​

​​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

Rockside_70cl_BC_Low.png

Jæja krakkar mínir! Það er ekkert annað, bara ný tegund í fasta vörulínu "core range" Kilchoman. 

Við munum öll eftir 100% Islay, eina viskíinu sem var framleitt að öllu leyti á Islay og úr Islay-ískum hráefnum, þar á meðal byggi sem ég held svei mér þá að Anthony hafi sjálfur sett niður og þreskjað (eða á kannski að segja þreskt?). Árið 2025 kom 15. útgafn af því út.

Nú er 100% Islay komið í fasta framleiðslu undir heitinu Rockside. Eins og önnur viskí í föstu vörulínunni dregur það nafn sitt af örnefni í nágrenni Kilchoman, reyndar heitir jörðin Rockside Farm, þannig að það gæti ekki legið beinna við. 

Þetta viskí er minna reykt en önnur Kilchoman viskí, einungis 20ppm miðað við að hin eru um 50ppm. Það gerir það að verkum að alls konar nýjir bragðtónar koma nú fram í þessu viskíi.

Rockside er þroskað í bourbon og sérrí tunnum og eins og vanalega hjá Kilchoman er boðið upp á línudans í bragði milli reyks, ávaxta, sítruss og krydda. 

​

Anthony Willis er ekkert að spara stóru orðin, og ekki heldur orðin þegar hann segir (og þið verðið sjálf að búa til skoska hreiminn þegar þið lesið þetta):

​

“Over twenty years in the making, Rockside 11 is the culmination of a journey that began with our first crop of Rockside barley in 2004. Across fifteen 100% Islay releases, we watched the spirit develop, waiting for the right moment to introduce Rockside as a core range expression.

 

Bright, fragrant and threaded with sweet peat, Rockside's character begins with the barley. Grown here on the farm, it endures harsh conditions, yet those challenges produce a barley, and ultimately a whisky, unlike any other.

 

Our work in the stillhouse and warehouse play an equally important role in shaping the spirit, but those processes can be replicated, Rockside Farm and Rockside barley cannot. They are uniquely ours, and at the heart of what makes Rockside 11 distinctive,”

 

Við ætlum að bjóða ykkur Rockside á sérstöku kynningarverði á meðan birgðir endast!​​​

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

Cognac26_BC_Low.png

Hér er um að ræða viskí sem hefur alltaf átt heima í koníakstunnum, þetta er semsagt ekki cognac "finish". ​​​Það gerir það að verkum að hin geggjaða franska eik í tunnunum fær aldeilis að njóta sín. 

Þessi útgáfa er ásamt Maury Cask útgáfunni hluti af verkefninu "Not a Finish" sem Kilchoman er að stunda þessa dagana. Einkenni Cognac Cask er létt og bjart yfirbragð þar sem perur og epli fá að njóta sín ásamt sykruðum egifer, kryddum og að sjálfsögðu Kilchoman reyk.

​

Það er alltaf gaman að vitna í Anthony Willis eiganda Kilchoman: 

​

"Full-term maturation in first-fill experimental casks is risky; we need to monitor the maturation very closely. The aim is to maximise flavour, both from the cask and from the spirit. The Cognac casks bring an abundance of flavour but left too long and they would overwhelm the Kilchoman spirit. The casks work to their own schedule, and we need to be ready to bottle when the balance is right,”

​

👃 Nose: Ripe pears and apples, with peat smoke, honey sweetness, toasted nuts, and baking spices.

 

👅 Palate: Buttery mouthfeel, with waves of baked fruit, honeycomb and salty sweetness.

 

🏁 Finish: Drying smoke with lasting sweetness and mellow fruit notes.

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

LochGorm_2026_BC_Low.png

Loch Gorm 2026 er viskí sem hefur lifað í Oloroso sérrítunnum í 10 ár hið minnsta. Það hefur leitt til þess að viskíið hefur ríkulegt kryddbragð ásamt bragði af dökku súkkulaði og þurrkuðum ávöxtum. Bara eins og Loch Gorm hefur alltaf og mörg þekkja svo vel og elska.  Það þarf bara ekkert að hafa fleiri orð um Loch Gorm enda segir Anthony Willis sem hefur alla jafna gaman af að tala: 

​

"We very much hope you enjoy this year’s edition."

​​​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

Maury_BC_Low.png

Þessi útgáfa er ekki það sem kallað er "finish", þ.e. viskí sem hefur þroskast í eikartunnum eða öðrum slíkum og svo látið enda þroskunina í Maury tunnum. Nei, þetta viskí hefur alið allan sinn aldur í Maury tunnum. 
En hvað er þetta Maury gætu einhver spurt. Jú, Maury er sætt, styrkt franskt vín frá Roussillion héraðinu í Suður-Frakklandi. Það er aðallega gert úr Grenache noir þrúgunni.  

 Hin langa og mikla snerting viskísins við Maury tunnuna hefur gætt það himnesku sætu ávaxtabragði sem tónar fullkomlega við hinn rómaða Kilchoman reyk og sætu.​

​

Tasting Notes:

👃Figs, raisins, and dates with salted caramel, orange peel, and soft peat smoke

👅 Pipe smoke and dark chocolate with layers of treacle and warming spices

🏁 Dried fruits, cacao, earthy peat smoke, and a gentle dry spice

​

“The Maury Cask Matured is a first ever release for us and something rarely seen on the market at all. These powerful fortified wine casks can be challenging to manage, but when you get them right, they can produce something really special. 

We are known for our full maturation policy for many of our limited editions and this is another example of that, bringing through all those beautiful Maury flavours in a bold and balanced dram, not to mention the incredible crimson red hue to the whisky,” Anthony Wills, Kilchoman Founder.

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

Árið 2023 sendu Kilchoman frá sér 16 ára gamalt viskí, þá var það í fyrsta sinn sem aldurs var getið á flösku frá Kilchoma. Nú er næsta útgáfa með aldursári, 13 ára gamalt viskí sem hefur legið í bourbon og sérrítunnum. Þetta viskí ilmar og smakkast af fullt af ávöxtum, sætu og auðvitað hinum einstæða Kilchoman reyk.

​

Gefum Anthony Willis orðið, það er ekkert hægt að orða þetta mikið betur en hann gerir: 

​

"After the overwhelming response to our 16 Years Old, I’m excited to announce the release of another age statement Kilchoman – The 13 Years Old. The ex-bourbon casks make up the large part of the vatting, lending that unmistakable Kilchoman character, while the addition of calvados casks, which may surprise a few people, infuses vibrant green apple and fresh fruit notes into the mix.” 

 ​

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

LochGorm24_BC_Low.png

Goðsagnakennda Loch Gorm er komið. Eimað árið 2015 og hefur legið í oloroso sjerrítunnum síðan þá. Fullt af reyk og gómsæti. Gormurinn svíkur aldrei.

 ​

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

kilchoman_100__islay_14thedition_ps.jpg.webp

Seinasta útgáfan af 100% Islay viskíinu, 15th Edition. Frá og með 2026 heitir þetta viskí Rockside. Þannig að þetta er orðið talsvert "rarítet" eins og danskurinn segir. En Guðaveigar eiga enn nokkrar flöskur af þessu eðalviskíi.

​

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

100� Islay 2022 B&C (lo).png

Hið geysivinsæla 100% Islay er eina viskíið sem framleitt er úr heimaræktuðu Islay byggi. Allt ferlið, frá sáningu kornsins til töppunnar á flösku fer fram á Islay. Þessa viskís er beðið með eftirvæntingu á hverju ári og í ár eru gefnat út tvær útgáfur af því. Sú sem við erum með núna er þroskuð í sérrítunnum í lágmark 11 ár, ólíkt hinni venjulegu 100% Islay útgáu sem hefur legið í bourbon tunnum. Anthony Willis segir um þessa: "I've had my eyes on these casks for a while, waiting for the perfect time to bottle them".

​

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

Kilchoman krakkarnir koma til skiptis með Sanaig og Machir Bay cask strength. Í ár er það Machir Bay Cask Strength. Einfaldlega Machir Bay beint útr tunnunni, eða því sem næst. algjört eðal þetta!!!

 

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

Machir-Bay-BC-lo-v2.png

Jæja jæja loksins loksins. 

Eftir þessu höfum við beðið síðan í vor að Kilchoman smellti á borðið nýrri útgáfu sem verður í "core range" hjá þeim og fer þá í flokk með Machir Bay og Sanaig.

Vid erum að tala um 57% skrímsli. Þroskað í "re-charred" rauðvínstunnum, oloroso sérrítunnum og bourbontunnum. Nokkrir dropar af vatni settir út í til að ná því í 57% og útkoman magnþrungið dramm. Sítrus og reykur í bland við dökka ávexti, krydd og saltkaramellu, eins og við þekkjum svo vel frá Kilchoman og þau gera svo vel, svo vel.

​. 

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

Kilchoman-234-2018_Front.jpg

New Oak útgáfan hjá Kilchoman er verulega spennandi. Þessi útgáfa er sérstaklega ætluð fyrir smærri markaði og við fengum smá slatta af þessu - þetta er ekkert sem menn eru að fara að finna í hillunum á venjulegum viskíbúðum.

Þetta er fyrsta útgáfan frá Kilcoman sem fær að þroskast í ómeðhöndluðum "virgin" eikartunnum. Fyrstu fimm árin fær það reyndar að vera í STR rauðvinstunnum en síðan fer það a ómeðhöndlaða eikartunnu í rúmt ár. Fyrir nördana þá er meira að segja um að ræða evrópska eik úr karpatíufjöllunum.

Reyndar er Anthony Willis ekkert sérstakur aðdáandi þess að þroska viskí í ómeðhöndlaðri eik og þess vegna er þessi millileið farin að enda þroskunina þar. 

​

​

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

Kilchoman-Port-Cask-Islay-Single-Malt-Scotch-Whisky.jpg

Þessi frábæra útgáfa er komin á Frónið. Þroskað í "ruby port" tunnum síðan það var smábarn og margslunginn bragðprófíll sem er tilkominn úr hinum sérvöldu tunnum þar sem su yngsta er sex ára gömul en sú elsta nær þrítugu. Hér mætir Islay mórinn ávöxtum og kryddi sem aldrei fyrr og ekki er styrkurinn í minna lagi eða 50%. BOBA!

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

 ​​

kilob.non57.jpg

Vid höfum áður boðið upp á Sauternes útgáfu frá Kilchoman sem seldist upp eins og skot. Hér mætir hið sæta Sauternes Islay reyknum og útkoman ómótstæðileg. Karamella, sykraðar apríkósur, salt, reykur og langt eftirbragð. Namminamm.

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

 ​​

Fino 2023 B&C (lo).png

Eins og nafnið gefur til kynna er hér um að ræða Kilchoman ciskí sem þroskað er í tunnum undan hinu frábæra Fino sérríi. Þetta er önnur slík útgáfa frá Kilchoman og Anthony Willis handvaldi þær tunnur sem notaðar voru í verkið. og hefur það legið í 20 slíkum tunnum frá 2018 og er nú komið í flöskur fyrir okkur að njóta. Þessi útgáfa býður upp a skemmtilegan valkost við Oloroso sérrítunnurnar sem við þekkjum og eru meðal annars notaðar til að búa til Loch Gorm sem við öll elskum. 

​Hér er boðið upp á "heavily peated" Kilcoman (50PPM) en samt ríkt af ávöxtunum og sérríi.

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending höfuðborgarsvæðinu.

KMB.jpg

Kilchoman nefna mörg viskíin sín eftir örnefnum í umhverfinu. Ströndin við Machir Bay er ein stærsta og fegursta ströndin á Islay þanngi að það er vel við hæfi að nefna einkennisviskí (signature brand) Kilchoman eftir henni. Viskíið þroskast í bourbon- (80%) og sérrítunnum (20%) og bragðið ber töluverðan ávaxtakeim en þar má einnig finna hinn einkennandi Islay reyk, vanillu, hunang, karamellu og sykur. 

Machir Bay fæst í þrem völdum Vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu; Heiðrúnu, Kringlunni og í Mosfellsbæ. Einnig í Vínbúðinni á Akureyri. Svo er auðvitað einnig hægt að sérpanta af vef Vínbúðarinnar og nægir að smella á myndina til að fara þangað.

KSA.jpg

Sanaig er lítil vík í nágrenni Kilchoman brugghússins og eftir henni nefna þau þetta frábæra viskí sitt sem er ásamt Machir Bay í kjarnaframleiðslu (core range) þeirra og fáanlegt árið um kring. Viskíið þroskast í bourbon- (50%) og sérrítunnum (50%) og kemur það vel fram í bragðinu. Þar finnst bragð af þurrkuðum ávöxtum, kanil og negul ásamt púðursykri og ýmsum kryddum.

Sanaig fæst í þrem völdum Vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu; Heiðrúnu, Kringlunni og í Mosfellsbæ. Einnig í Vínbúðinni á Akureyri. Svo er auðvitað einnig hægt að sérpanta af vef Vínbúðarinnar og nægir að smella á myndina til að fara þangað. 

Kilchoman-Sanaig-CaskStrength-Mood2_200x200_2x.jpg

Sanaig hefur aldeilis fest sig í sessi og margir telja það flaggskip Kilchoman. Hér gefst færi á að smakka Sanaig á sterum, ef þetta visík væri gítarmagnari færi það upp í 11!

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

 ​​

Kilchoman-SB-STR_Small-Markets.jpg

STR stendur fyrir "Shaved, Toasted and Re-charred". Þá eru viskítunnur endurnýttar, en fyrir þá sem ekki þekkja til þá eru tunnur sem viskí er sett í yfirleitt sviðnar að innan áður en viskiið fer í þær. Þegar viskíið er svo á endanum sett á flöskur hafa tunurnar skilað sínu hlutverki og eru þá annað hvort teknar úr umferð eða nýttar i annað - eða endurnýttar. Í því tilviki eru ysta lag viðarins skafið innan úr þeim og þær sviðnar upp á nýtt og aftur sett viskí í tunnuna. 

​Í þessari Kilchoman útgáfu er um að ræða Kilchoman viskí úr bourbon og oloroso sérrítunnum sem hefur svo fengið að þroskast í STR rauðvínstunnum. Útkoman er klassískt Kilchoman með "red fruits, cinnamon sweetness and fresh vanilla" svo notuð séu orð Anthony Willis sjálfs. 

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending höfuðborgarsvæðinu.

kilchoman-px-sherry-cask-matured-50-whisky.jpg

Kilchoman PX Cask er viskí sem hefur verið látið þroskast í Pedro Ximenes sérrítunnum. Þarna má finna dökkt og sætt ávaxtabragð, hnetur og krydd sem blandast snilldarlega við Islay reykinn.

Að þessu sinni er boðið upp á viski sem hefur eingöngu verið þroskað í PX tunnum (í fimm ar) þannig að þetta viskí hefur aldrei snert annað en sérrí. 

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

Cognac 2023 B&C (lo).png

Þetta viskí frá Kilchoman er fullkomin blanda af hinu klassíska ávaxtaríka Kilchoman bragði og áhrifunum úr koníakstunnunum þar sem hvorugt yfirgnæfir hitt. 

Lykt af eplum, perum og fleiri avöxtum tekur a móti okkur í glasinu, smá hunang og krydd líka. Þegar í munnin er komið finnum við koníaks eikina ásamt þurrkuðum ávöxtunum og reyknum. Eftirbragðið er svo djúpt og langt þökk sé koníakstunnunum. Ávextir, marsípan og smá reykur. Geggjað, alveg geggjað!

​

Þetta viskí er eingöngu til sölu hér á síðunni - ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

Kilchoman_Double_Armagnac_Finish-776x1176.jpg

Kilchoman Armagnac "Double Cask" Finish - UPPSELT!!

Mjög áhugavert hjá Kilchoman svo ekki sé meira sagt. Þetta viskí hefur verið þroskað í bourbon tunnum og svo armagnac tunnum í 7 mánuði. Algjörlega frábær vökvi! Fæst nú í mög takmörkuðu upplagi.

​Ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu.

© 2021 Guðaveigar ehf. Öll réttindi áskilin

  • Instagram
  • facebook
bottom of page